um rental relay
Einfaldari leið til að halda utan um vangreiðslur
RentalRelay er tilkynningarkerfi sem er hannað fyrir bílaleigur og einfaldar utanumhald upplýsinga um gjaldtökur tengdar leigubílum.
Kerfið tengir saman upplýsingar um gjaldtökur og ökutæki og tryggir að bílaleigur fái tilkynningar þegar gjaldtaka er skráð á tiltekið bílnúmer. Með því verður auðveldara að halda utan um upplýsingar um hvar og hvenær gjaldtökur eiga sér stað.
130+
Bílastæði
30+
Bílaleigur
25+
Rekstraraðilar
500þ+
Ferðir

Hvers vegna RentalRelay?
Utanumhald gjaldtaka getur verið tímafrekt, sérstaklega þegar um mörg ökutæki er að ræða. Mikilvægt er að upplýsingar berist til réttra aðila svo hægt sé að bregðast við þeim og vinna úr þeim á skilvirkan hátt.
RentalRelay einfaldar þetta ferli með miðlægri lausn sem heldur utan um tilkynningar og miðlar þeim áfram til bílaleigunnar.
Markmiðið er að draga úr handvirkri vinnu, bæta yfirsýn og einfalda daglegan rekstur.

Einföld og sveigjanleg lausn
RentalRelay býður upp á mismunandi leiðir til að tengjast kerfinu. Hægt er að skrá upplýsingar handvirkt í stjórnborði eða nýta sjálfvirka tengingu í gegnum API.
Einnig er hægt að tengjast í gegnum studd rekstrarkerfi, svo sem Mellow, Caren og NetRent.
Þannig geta bílaleigur nýtt sér þjónustuna án þess að þurfa allar að fara í gegnum sama uppsetningarferlið.

Hvað gerir RentalRelay?
RentalRelay sér um að miðla upplýsingum um gjaldtökur til bílaleiga með stöðluðum tölvupósttilkynningum.
Tilkynningarnar innihalda helstu upplýsingar um gjaldtökuna, svo sem bílnúmer, staðsetningu og dagsetningu og tíma.
RentalRelay sér eingöngu um miðlun upplýsinga. Kerfið innheimtir ekki gjöld eða greiðslur og tekur ekki við greiðslum fyrir hönd bílaleiga.
Viltu vita meira?
Hafðu samband
Viltu vita meira um RentalRelay eða kanna möguleikana á að tengja þína bílaleigu við kerfið?
Við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina og koma þér af stað.
